Algengar spurningar
Algengar spurningar
Finnurðu ekki það sem þú ert að leita að?
Skoðaðu Hjálparmiðstöð okkar til að fá frekari tæknilega aðstoð.
Er Outline VPN-net?
Nei, Outline er ekki VPN-net. Það gerir öllum kleift að setja upp og stjórna eigin, lokuðum VPN-þjóni.
Hvers vegna er erfiðara að loka á Outline en hefðbundin VPN-net?
Outline notar handabandslausa og dulda samskiptareglu sem er erfitt að greina, ólíkt hefðbundnum VPN-samskiptareglum sem er auðvelt að greina og loka á.
Lokuð dreifing aðgangs. Ólíkt því sem tíðkast á opnum VPN-netum, þar sem ritskoðandi getur auðveldlega fengið aðgang að og búið til lista yfir þjóna sem viðkomandi þarf að loka á.
Með Outline er auðvelt að endurgera þjón sem er lokað á.
Ég sótti Outline-forritið en er ekki með aðgangslykil. Hvar finn ég aðgangslykil?
Aðeins er hægt að búa til aðgangslykla í Outline Manager. Hafðu samband við einhvern sem þú þekkir sem hefur sett upp þjón með Outline Manager, eða settu upp þinn eigin þjón og sendu þér aðgangslykil.
Er Outline öruggt?
Ég hef áhyggjur af gögnunum mínum. Hvaða upplýsingum er safnað?
Hvernig vel ég skýjaþjónustu?
Veldu skýjaþjónustu í takt við þínar þarfir og fjárhag. Google og Amazon Web Services eru dæmi um traustar þjónustur. Digital Ocean býður upp á mánaðarlegar áskriftir sem eru meðal þeirra ódýrustu og margir notendur segja þjónustuna einfaldari í uppsetningu en aðrar.
Hvernig deili ég aðgangslykli?
Þú getur deilt aðgangslyklum beint úr Manager. Þegar smellt er á aðgerðarkallið um að deila aðgangslykli birtist boð með forútfylltum skilaboðum með leiðbeiningum til viðtakanda um hvernig á að móttaka lykilinn, sækja biðlarann og tengjast Outline-þjóninum þínum. Þú þarft að vera með netfang eða símanúmer viðtakandans til að geta sent viðkomandi aðgangslykil og leiðbeiningar um tengingu.
Mörg VPN-net eru gjaldfrjáls. Hvers vegna ætti ég að greiða fyrir að reka mitt eigið VPN-net með Outline?
Á mörgum gjaldfrjálsum VPN-netum veistu ekki hver hefur aðgang að gögnunum þínum. Mörg gjaldfrjáls VPN-net deila gögnunum þínum eða selja þau eða rekja netvirknina þína. Sumir öryggissérfræðingar telja að mörg vinsæl, gjaldfrjáls VPN-net veiti stjórnvöldum og öðrum eftirlitsaðilum bakdyraaðgang. Einnig er auðvelt að greina og loka á flest gjaldfrjáls VPN-net.
Má ég nota eða herma eftir Outline-vörumerkinu?
Hver á og viðheldur Outline?
Árið 2026 færðist eignarhald á Outline yfir til Outline Foundation, óháðra og óhagnaðardrifinna samtaka. Outline var hleypt af stokkunum árið 2018 af Jigsaw, sem er tækniþróunarmiðstöð innan Google. Outline er áfram gjaldfrjálst verkefni með opnum kóða sem er rekið af framlögum frá samfélaginu.