Hefjast handa
Tvær vörur sem vinna saman
Outline samanstendur af tveimur tengdum vörum sem vinna saman til að veita þér og samfélaginu þínu aðgang að internetinu án truflana.
Step 1
Hafist handa með Outline Manager
Settu upp þjóninn þinn úr Outline Manager-skjáborðsforritinu
Sæktu Manager-skjáborðsforritið til að hefja uppsetningu þjónsins. Við hönnuðum Outline til að þú getir stjórnað öllu sem tengist þjóninum á einum stað. Veldu af lista yfir traustar skýjaþjónustur eða notaðu eigið Linux-kerfi. Margar skýjaþjónustur bjóða áskriftir fyrir 5 USD á mánuði eða minna.
Þegar þú hefur sótt Manager færðu beiðni um að velja hjá hvaða skýjaþjónustu þú vilt reka þjóninn. Þú getur valið trausta aðila á borð við Digital Ocean, AWS eða Google Cloud. Eftir að þú velur skýjaþjónustu færðu leiðbeiningar um uppsetningarferlið frá viðkomandi þjónustu, en þú getur stjórnað þjóninum þínum í gegnum Outline Manager.
Outline gerir þér kleift að velja staðsetningu fyrir þjóninn. Þú getur beint umferð í gegnum Singapúr, Þýskaland, Bandaríkin og ýmis önnur lönd.
Step 2
Búa til aðgangslykla
Búðu til aðgangslykla til að tengja tækin þín og deila aðgangi með netkerfinu þínu
Eftir uppsetningu þjónsins geturðu búið til einkvæma aðgangslykla í Manager-skjáborðsforritinu. Manager gerir þér kleift að senda boð um tengjast þjóninum þínum í gegnum samskiptakerfi að eigin vali. Þú notar aðgangslykla til að tengja tækin þín við Outline Manager og vernda þau með þjóninum þínum. Hver aðgangslykill er einkvæmur og hægt er að stjórna honum eða eyða beint í gegnum þjóninn. Þú getur notað gagnatakmörk til að stjórna því hversu mikla bandvídd hver lykill getur notað.
Til að tengjast þjóninum þarf bara að samþykkja boðið. Þegar tenging er komin á er einfalt að kveikja og slökkva á henni í forritinu.
Step 3
Sæktu Outline Client-forritið fyrir tölvur og snjalltæki
Tengstu með einkvæmum aðgangslykli
Sæktu Outline Client-forritið úr App Store eða Google Play Store og tengstu með einkvæma aðgangslyklinum. Client-forritið er í boði fyrir tölvur og snjalltæki svo þú getur komist á opna internetið og átt í lokuðum samskiptum hvar sem þú ert í öllum tækjunum þínum.
Þegar þú hefur tengt þín tæki geturðu deilt aðgangi að þjóninum þínum með vinum eða samstarfsfólki. Búðu til einkvæma aðgangslykla og sendu þá til aðila á netinu þínu sem þurfa óheftan aðgang að internetinu. Stjórnaðu aðgangi að þjóninum þínum með gagnatakmörkum. Þannig geturðu sett hámark á gagnanotkun ef einhver á netinu skyldi nota of mikla bandvídd.
Nota annan tengil. Kynntu þér kröfurnar til að keyra þjóninn.
Finnurðu ekki það sem þú ert að leita að?
Skoðaðu hjálparsíðuna okkar.
Algengar spurningar um Outline