Við kynnum forritunarverkfæri Outline – háþróaðar lausnir til að tryggja öflugra viðnám gegn nettruflunum Nánar

Aðgangur að frjálsu og opnu interneti

Með Outline er auðvelt að búa til VPN-þjón og veita hverjum sem er aðgang að frjálsu og opnu interneti.

Sækja Outline

Undanfarinn áratug hefur ritskoðun á internetinu farið sívaxandi.

Outline veitir öllum aðgang að frjálsu og opnu interneti á öruggari hátt með því að gera fólki kleift að reka eigið VPN-net. Þegar þú rekur VPN-þjón í gegnum Outline verður aðgangur að netinu öruggari og erfiðara verður að loka á tenginguna.

Hvers vegna VPN?

VPN-net gagnast við að halda samskiptum þínum lokuðum og gerir þér kleift að halda aðgangi að frjálsu og opnu neti. Hjá flestum VPN-þjónustum er þó ekki alltaf hægt að sjá hver stjórnar VPN-netinu og hver hefur aðgang að gögnunum þínum.

Einu sinni var flókið ferli að búa til VPN-þjón, en ekki lengur.

Hvers vegna Outline?

Outline gerir hverjum sem er kleift að búa til, reka og deila aðgangi að eigin VPN-neti. Outline er hannað til að standast lokun. Þú getur stjórnað uppsetningu þjónsins, þar á meðal hvar hann er staðsettur. Outline notar gagnsæja tækni, er með opinn kóða að öllu leyti og tvö öryggisfyrirtæki hafa yfirfarið kerfið til að tryggja að tækni þess sé fyrsta flokks og örugg.

Mótstaða gegn lokunum

Outline stenst háþróaðar aðferðir við lokun á borð við DNS-, efnis- og IP-lokun. Notendur segja að Outline virki jafnvel þótt önnur vinsæl VPN-net séu lokuð eða geti ekki tengst.

Umfang

Auðvelt er að deila aðgangi að Outline-þjóni úr Outline Manager. Búðu til einkvæma aðgangslykla í Manager-skjáborðsforritinu og deildu þeim með traustum aðilum í gegnum tölvupóst eða samfélagsmiðla. Outline gerir þér kleift að styðja hundruð notenda með því að veita þeim aðgang að þjóninum þínum en þú getur líka takmarkað aðgang við nána tengiliði.

Stjórn

Outline gerir þér kleift að stjórna aðgangi þínum að internetinu með því að veita þér stjórn yfir þínum eigin þjóni. Þú getur ákveðið hvar þjóninn er staðsettur og hverjir hafa aðgang að honum. Í Outline Manager geturðu stillt gagnahámark fyrir hvern notanda sem fær aðgang að þjóninum í gegnum Client-forritið.

Tvær vörur sem vinna saman

Outline samanstendur af tveimur vörum sem báðar eru byggðar á háþróaðri grunntækni okkar í gegnum forritunarverkfæri Outline.

Outline Manager auðveldar þér að búa til þinn eigin VPN-þjón. Settu upp þjóninn þinn og deildu aðgangslyklum beint úr skjáborðsforritinu. Outline Manager er í boði fyrir öll skjáborðskerfi.

Sækja Outline Manager

Outline Client er einfalt og notendavænt forrit sem gerir þér kleift að deila aðgangi að VPN-netinu þínu með hverjum sem er á netkerfinu þínu. Sæktu forritið í snjalltæki eða tölvu til að vernda öll tækin þín. Tengstu þjóninum þínum með einkvæma aðgangslyklinum sem er búinn til í Outline Manager.

Sækja Outline Client

Skoðaðu fjölkerfa safnið okkar og verkfærasettið sem notast við háþróaðar netlausnir Outline til að vernda forritin þín og VPN-verkfærin gegn nettruflunum.

Hefjast handa

Internet sem þú getur treyst

Outline er með opinn kóða og hefur hlotið yfirferð Radically Open Security (2018, 2022) og Cure53 (2018, 2024).

Vefsvæðið getoutline.me og tengda Telegram-rásin „@OutlineVpnOfficial“ tengjast ekki Outline-teyminu og við getum ekki aðstoðað notendur sem lenda í vandamálum með aðgangslykla frá þessum þjónustum.