Algengar spurningar
Algengar spurningar
Finnurðu ekki það sem þú ert að leita að?
Skoðaðu hjálparmiðstöðina okkar til að fá frekari tæknilega aðstoð.
Nei, Outline er ekki VPN-net. Það gerir öllum kleift að setja upp og stjórna eigin, lokuðum VPN-þjóni.
- Outline notar handabandslausa og dulda samskiptareglu sem er erfitt að greina, ólíkt hefðbundnum VPN-samskiptareglum sem er auðvelt að greina og loka á.
- Lokuð dreifing aðgangs. Ólíkt því sem tíðkast á opnum VPN-netum, þar sem ritskoðandi getur auðveldlega fengið aðgang að og búið til lista yfir þjóna sem viðkomandi þarf að loka á.
- Með Outline er auðvelt að endurgera þjón sem er lokað á.
Aðeins er hægt að búa til aðgangslykla í Outline Manager. Hafðu samband við einhvern sem þú þekkir sem hefur sett upp þjón með Outline Manager, eða settu upp þinn eigin þjón og sendu þér aðgangslykil.
Tvö óháð öryggisfyrirtæki hafa yfirfarið Outline. Lestu skýrslurnar þeirra hér: Radically Open Security (Mars 2018, Desember 2022), Cure53 (Desember 2018, Janúar 2024).
Outline safnar ekki persónuupplýsingum nema þú samþykkir að gefa þær upp. Outline safnar heldur ekki upplýsingum um vefsvæðin sem þú opnar eða við hverja eða hvað þú hefur samskipti. Frekari upplýsingar um gögnin sem við söfnum má finna í þessari hjálpargrein.
Ef þú ert að stofna eða skrá þig inn á reikning hjá skýjaþjónustu í gegnum Outline Manager, fáum við engar upplýsingar sem þú veitir skýjaþjónustunni á borð við netfang, nafn, reiknings- eða greiðsluupplýsingar.
Veldu skýjaþjónustu í takt við þínar þarfir og fjárhag. Google og Amazon Web Services eru dæmi um traustar þjónustur. Digital Ocean býður upp á mánaðarlegar áskriftir sem eru meðal þeirra ódýrustu og margir notendur segja þjónustuna einfaldari í uppsetningu en aðrar.
Þú getur deilt aðgangslyklum beint úr Manager. Þegar smellt er á aðgerðarkallið um að deila aðgangslykli birtist boð með forútfylltum skilaboðum með leiðbeiningum til viðtakanda um hvernig á að móttaka lykilinn, sækja biðlarann og tengjast Outline-þjóninum þínum. Þú þarft að vera með netfang eða símanúmer viðtakandans til að geta sent viðkomandi aðgangslykil og leiðbeiningar um tengingu.
Á mörgum gjaldfrjálsum VPN-netum veistu ekki hver hefur aðgang að gögnunum þínum. Mörg gjaldfrjáls VPN-net deila gögnunum þínum eða selja þau eða rekja netvirknina þína. Sumir öryggissérfræðingar telja að mörg vinsæl, gjaldfrjáls VPN-net veiti stjórnvöldum og öðrum eftirlitsaðilum bakdyraaðgang. Einnig er auðvelt að greina og loka á flest gjaldfrjáls VPN-net.
Outline er vissulega byggt á opnum kóða og notkun þess er gjaldfrjáls en vörumerkið er í eigu Jigsaw og það má ekki misnota. Lestu og fylgdu þessari handbók til að tryggja að þú setjir ekki fram villandi fullyrðingar eða mistúlkir samband þitt við Outline eða Jigsaw og að þú notir samþykkta þætti vörumerkisins á réttan máta.