Svona virkar þetta
Keyrðu þitt eigið VPN-net og stjórnaðu þinni netumferð
Outline býður betur en hefðbundin VPN-net með því að auðvelda öllum að búa til eigið VPN-net.
Hefðbundin VPN-net
Oft er auðvelt að loka á hefðbundin VPN-net vegna þess hve auðvelt er að greina þau.
Þegar þú notar VPN-net er umferðin þín nafnlaus en tilteknar öryggissamskiptareglur sem gilda á vinsælum VPN-netum nota einkvæmar dulmálsundirskriftir sem er auðvelt að greina og loka á.
Þegar þú tengir tækið þitt við hefðbundið VPN-net er auðvelt að greina umferðina þína vegna þess að auðvelt er að greina umfang svipaðrar umferðar til að finna þjón og loka á hann.
Outline
Outline virkar þegar önnur VPN-net er lokuð og stenst háþróaða ritskoðun á borð við netkerfislokun og IP-lokun.
Outline er öflugra vegna þess að það byggir á samskiptareglu sem er erfiðara að greina og því erfiðara að loka á.
Deildu aðgangi að þjóninum þínum á lokaðan hátt með fólki sem þú treystir. Því færra fólk sem tengist þjóninum, því erfiðara er að greina hann og því auðveldara er að fara huldu höfði.
Outline var hannað með persónuvernd þína í huga.
Það skráir hvorki umferð né rekur netnotkun þína.
Sækja Outline Manager Sækja Outline ClientKynntu þér hvernig einstaklingar og stofnanir nota Outline
Finnurðu ekki það sem þú ert að leita að?
Skoðaðu hjálparsíðuna okkar.
Algengar spurningar um Outline