Hoppa yfir á aðal efni

Fyrir forritara

Outline SDK

Fjölkerfa safn og verkfærasett fyrir þróunaraðila forrita til að endurnýta háþróaðar netlausnir Outline í því skyni að draga úr jafnvel flóknustu truflunum sem geta átt sér stað á netkerfisstigi.

Byrjaðu að nota forritunarverkfæri Outline
Hannað til varnar gegn ritskoðun

Netritskoðun er í stöðugri þróun. Nú eru sannprófaðar lausnir frá Outline sem hafa hjálpað milljónum notenda að fá aðgang að netinu, við jafnvel erfiðustu aðstæður, tiltækar forriturum í gegnum notendavæn forritunarverkfæri. Forritunarverkfæri Outline virka í öllum helstu kerfum og þau eru sérhönnuð til að auðvelda sveigjanlega samsetningu og endurnýtingu tækninnar.

Forritunarverkfæri Outline nýtast á tvo ólíka vegu við forritun.

Þróunaraðilar geta einbeitt sér að því að hjálpa fleiri notendum að taka þátt í alþjóðlega internetinu og fá aðgang að efninu þeirra á sama tíma og forritunarverkfæri Outline veita þér öflugri og samþættari lausnir til að verjast útilokun.

Þróunaraðilar forrita

Felldu háþróaðar netlausnir beint inn í forrit til að sneiða hjá óæskilegum nettruflunum og opna fyrir aðgang að efninu þínu.

VPN-þróunaraðilar

Nýttu grunnuppbyggingareiningar Outline og lausnir sem eru byggðar á opnum kóða til að hanna hágæða VPN-upplifun og vaxa samhliða þeim bestu á sínu sviði.

Helstu eiginleikar

Mynd sérsníðanlegra viðmóta

Sérsníðanleg viðmót

Nýttu þér viðmót sem eru hönnuð til endurnýtingar og sveigjanleika. Samþættu tilbúnar lausnir við þínar eigin innleiðingar til að hanna sérsniðna upplifun.

Mynd margra lausna í þróun

Margar lausnir í þróun

Veldu úr ýmsum tengingarleiðum, allt frá valkostum sem eru byggðir á staðgengilsþjónum á borð við Shadowsocks yfir í lausnir án staðgengilsþjóns á borð við sundurgreiningu og öflugt DNS. Um leið og stafræni heimurinn breytist, þróum við og aðlögum lausnirnar okkar til að tryggja að tengingin sé ávallt skrefi á undan.

Mynd VPN-safna

VPN-söfn

Fáðu aðgang að nauðsynlegum uppbyggingareiningum fyrir VPN-forrit sem virkar þvert á kerfi. Þetta felur í sér tengi á borð við „tun2socks'“ til að brúa bilið á milli IP og flutningslaga og alhliða meðhöndlun UDP-lokunar, auk annarra ítareiginleika.

Nánar

Finnurðu ekki það sem þú ert að leita að?

Skoðaðu hjálparsíðuna okkar.

Algengar spurningar um Outline